Skip to content

Búnaður

Leiðbeiningar á GitHub

Hér má finna samansafn leiðbeininga á GitHub.

Efnið er í vinnslu.

Þrívíddarprentarar

Fab Lab Akureyri er með fimm 3D-prentara, alla frá Prusa.

3x Prusa CoreOne

prusa

Leiðbeiningar fyrir Mk3s+

1x Prusa MK4S+

prusa

1x Prusa MK3S+

prusa

Leiðbeiningar fyrir Mk3s+

Stór fræsibekkur

ShopBot

shopbot

Stóri fræsinn okkar. Hentar vel til fræsingar í allar gerðir af viði, plasti, frauði, expoxy og ál.

Litlir fræsarar

Wegstr

wegstr

Nettir og þægilegir fræsarar sem henta einstaklega vel fyrir rafrásagerð.

Laserskurður

Epilog

epiloglaser

Tvær laserskurðarvélar, 40W og 60W. Með þeim er hægt að skera og merkja margskonar efni. Vélarnar skera og merkja MDF, krossvið, leður, akrýlplast(plexýgler). Einnig merkja þær í gler, stein og á málma.

xTool F1 Ultra

xtool

Þetta er nýjasta laservélin okkar, en í henni eru tvær gerðir geisla: "Blátt ljós og "fiber", en aðallega er það "fiber" geislinn sem gerir græjuna spennandi. Það er hægt að merkja beint í málma, sem og að gera rafrásir í kopar. Stórmerkilegt alveg hreint!

Stafræn útsaumsvél

Husqvarna

husqvarna

Tölvustýrð útsaumsvél sem á auðvelt með að sauma í öll helstu fataefni. Vélin virkar einnig sem hefðbundin saumavél.

Vínylskeri

Roland

rolandvinyl

Skemmtilegur vínylskeri sem getur skorið út bæði hefðbundna límmiða, sandblástursfilmur og fatafilmur. Fatafilmurnar er hægt að líma við föt með hitapressu.

Hitapressun

Secabo C5

secabo

Hitapressa til að merkja föt

Leiðbeiningar fyrir Secabo C5

Vacuum formun

Mayku Multiplier

mayku

Nýjasta græjan á svæðinu! Hægt að búa til mót úr plastefnum og sílikoni.

Annar búnaður

Auk þeirra ofantalinna tækja, er smiðjan útbúið öllum helstu tækjum og verkfærum sem þarf til margskonar verka, svo sem:

  • Almenn handverkfæri eins og skrúfjárn, hamar, dúkahnífar, tangir og þjalir.
  • Stillanlegir spennugjafar
  • Sveiflusjá
  • Lóðboltar, tin og tinsugur.